June 29, 2010

Kristín Svava Tómasdóttir - Mallorca

June 23, 2010
Strax eða aldrei

Ég vildi sem fálkinn um loftgeima líða,

mér leiðist sem ormur í duftinu að skríða,

ég aldrei í moldinni fullnæging fann.

Úr glófögrum marmara vildi ég vinna

á vetfangi líkneskju hugmynda minna.

Sá skapandi vilji er það vald, sem ég ann.

Með stjórnlausum ákafa eg áfram vil þjóta,

á örskammri stund vil ég lifa og þjóta,

ég get ekki mjakað mér fet fyrir fet.

Ég vil ekki læra að bíða og bíða,

betra er að stökkva til falls en að skríða,

því gullroðna líkkistu lítils ég met.

Jóhann Sigurjónsson (1880-1919)

June 21, 2010
"Ljúga að öðrum er ljótur vani,
en ljúga að sjálfum sér hvers manns bani.
-Jóhann Gunnar Sigurðsson"

June 16, 2010
Óeirð

Öldurnar síkvikar  finna’ekki frið,þær fyssandi gjálfra  við steinana’og miðin.Rólausar eru þær  rétt eins og viðsem reynum að hlusta á  ólgandi niðinnen heyrum ei neitt nema  kæfandi kliðinnsem kaffærir hugann er  stundin er liðin.              - Elín  Elísabet Einarsdóttir

Óeirð

Öldurnar síkvikar finna’ekki frið,
þær fyssandi gjálfra við steinana’og miðin.
Rólausar eru þær rétt eins og við
sem reynum að hlusta á ólgandi niðinn
en heyrum ei neitt nema kæfandi kliðinn
sem kaffærir hugann er stundin er liðin.

             -
Elín Elísabet Einarsdóttir

June 15, 2010
Tin

Tin

Svífum á hvítum fjöðrum,

föllum eins og snjór,

lendum mjúklega á vatninu,

fljótum á pappírsbátum.

Eins og staðfasti tindátinn

bráðna í eldinum

vona að vindurinn

komi þér til mín.

Ég er ekkert nema hjarta,

þú, brennandi ballerína.

Snorri Rafn Hallsson

June 8, 2010
Hávamál, 79.

Ósnotur maður
ef eignast getur
fé eða fljóðs munuð,
metnaður honum þróast
en manvit aldregi,
fram gengur hann drjúgt í dul.

April 4, 2010
Dæmi um ljóðverkaárás

Dæmi um ljóðverkaárás

Liked posts on Tumblr: More liked posts »